Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Ætlaru á vopnafjarðardaga?!

Leit

8. Apríl

08. apríl 2008 klukkan 10:56
Jæja , þá er komið að því , eftir 9 daga mæti ég í skólann í síðasta skipti einungis til þess að fá afhent Diploma
þ.e.a.s ef ég fell ekki :D
Búin að ná öllu hingað til, eitt próf eftir og ég er frekar bjartsýn á því að ná
S.s. á mánudaginn og þriðjudaginn í næstu viku eru svokallaðir Myndadagar í skólanum , þá mætum við með módel og stíliserum og förðum og greiðum módelinu í því "þema" sem við erum búnar að ákveða,
á staðnum verður ljósmyndari sem mun taka portfolio myndir af hverju þema hjá hverjum nemenda
á Fimmtudaginn semsagt í næstu viku þá mætum við í skólan rosa fínar og sætar og "Útskrifumst"

á föstudeginum ætlum við stelpurnar í bekknum að fara út að borða á Hereford ásamt kennurunum Siggu og Herdísi, eftir að við höfum étið á okkur gat og stoppað dágóða stund á barnum ætlum við sko aldeilis að mála bæinn rauðann.



Ég er mjög fegin að vera loksins búin með skólann , eða fegin og ekki fegin , vissulega var rosa gaman alltaf
skemmtilega stelpur og æðislegir kennarar
en Fjórtan vikur straight sem einkenndust af Vinnu , skóla og þreytu er svolítið mikið.

Það sem framundan er , er að mestu óráðið , hef ákveðið að láta skilið við Hagkaup eftir 2 og hálft ár hjá fyrirtækinu Óákveðinn
Spurningin er hvort maður eigi að skella sér á Lauga í skóla eða hvort maður slái þessu upp í kæruleysi og flytjist til Vopnafjarðar í nokkra mánuði , bara svona aðeins til þess að slappa af og eignast pening Hlæjandi
Þó að ekki sé mikið um mannin þarna heima þá held ég að það yrði bara æðislegt að fá að búa þarna í smástund aftur ALEINN!!!

En ætli maður þurfi ekki að fara að halda áfram að vinna..
Vildi bara láta vita af mér , hvernig mér gengi í skólanum og þess háttar..
Þó svo að ég bloggi nú ekki oft þá væri ég nú alveg til í að fá allavegana tvö komment , bið nú ekki um mikið.

                                                                                                                                                -Ragna Guðmunds

1.Mars '08

01. mars 2008 klukkan 14:44


Skömm að segja frá því en þetta er fyrsta bloggið á árinu, og kominn 1 mars..


En dagar mínir á þessu ári hafa allir verið eins,
mætt í vinnuna kl 8 unnið eins og brjálæðingur til 5
farið heim í sturtu og brunað í skólann kl 7 og til 11,

já það er óhætt að segja að það sé nó að gera núna, talning á morgun og þar sem að ég er tölvugúrúið á staðnum þá þarf ég víst að mæta fyrst og fara síðust, það verður ábyggilega æðislegt að vakna til vinnu á mánudaginn Svalur

Í vikunni sem leið lærðum við Dragförðun í skólanum og var það mjög skemmtilegt, á þriðjudeginum farðaði Ragga mig og var það svaðalegt , þegar búið var að hylja augabrúnirnar var eins og maður hefði legið á spítala með næringu í æði í 3 ár.
Svo á miðvikudeginum farðaði ég Röggu og gekk það upp og niður en útkoman var svo allt í lagi..
Á fimmtudeginum var aðalfjörið en þá tók ég Grjóna verslunarstjóra með mér sem módel í dragförðun,
útkoman var hreint út sagt æðisleg og var hann að fýla sig í tætlur í "gervinu"
pósaði hægri vinstri og hanga nú myndir af honum upp í vinnu og enginn veit hver þetta er ,
það segir mér það að mér hefur greinilega gengið príðilega ;)


Sæt/ur ??

Jæja ætli maður skelli sér ekki bara í kjólinn þar sem að það er loksins komin sól hérna í Reykjavíkinni ;)

25. Des

25. desember 2007 klukkan 14:01
Þetta ár er búið að vera fáranlega langt að líða,

finnst eins og það sé bara sumar ennþá en nei, ég lýt út um gluggan og sé ekkert nema snjó..

Jæja aðeins fjórir dagar þangað til að ég fer "heim" Hllakka til að hitta allar stelpurnar.

Komst að því um daginn að ég er orðin háð Elvu, shit sakna hennar rosa rosa mikið , hún er samt bara búin að vera í burtu í 12 daga eða e-a.. shii...

Jæja í jólagjöf fékk ég margt flott....

Frá Hædý minni fékk ég ógeðslega flottan kertastjaka og græna eyrnalokka,
Frá Elvu fékk ég svo græna bjórdælu, haha svaka flotta..

Herdís gaf mér svona handspa frá Aquolina ógeðslega góð lykt af því svona ávaxta.. Mmm..

Ragna amma gaf mér sofusokka og pening,
Linda amma og Hreinsi afi gáfu mér Geeeggjaða dúnsæng, fer ekki undan henni sko ;D

Fékk Bíóbrot spilið frá Stefáni Inga

Rúmföt á nýju sængina frá Agnesi og Herði

Æðislega Billabong úlpu frá Múttu og Pápa, svona hvíta og brúna brettaúlpu...

Jæja Held að þetta sé bara allt sem ég fékk og er ég mjöööög ánægð með allt sem ég fékk, takk æðislega fyrir

Og Gleðileg Jól..


P.s Ef e-er veit um far frá egils yfir til vopna á laugardaginn um kl 6 og getur leyft mér að fljóta með , viljiði þá láta mig vita, get ekki beðið þangað til á mánudaginn með að komast yfir :D

Einu sinni í mánuði!!

24. október 2007 klukkan 19:20

Sæl!

Soldið í fréttum núna skal ég ykkur segja..!

Helst í fréttum er það að mín var að fá inní skóla, byrja í Janúar..
Námið tekur 14 vikur kennt er alla virka daga frá 19-23 og eftir þessar 14 strembnu vikur þá er ég orðin Förðunarfræðingur!! Get ekki beðið eftir því að þetta sé búið, ég og Herdís ætlum að fara sama, þetta er eitt af okkar sameiginlega Áhugamáli..

Er enn og aftur að fara að færa mig um set í vinnuni, Fékk nóg af Mjólkinni, er að fara í mánuði í leikföngin og svo verð ég í Tölvuumsjóninni...



That's Me!!



Jæja, Danmörk eftir aðeins 22 Daga.. Ekki verður nú verslað mikið í þeirri ferð þar sem að ég þarf að vera búin að borga skólann í Des.. Óákveðinn
 
Já, Gleymdi .. Árshátíð Hagkaupa verður haldin 3 nóvember næstkomandi, Veislustjórar Ljótu Hálfvitarnir ..
Ætla rétt að vona að mér verði leyft að fara annars segji ég upp ..!!
Annars sagði Grjóni að ég mætti fara á Jólaballið í staðinn.. sem er btw haldið fyrir börn starfsfólks Hagkaupa!!!

Fífl..!!

Jæja held það verði nú ekki lengra að sinni ætli ég bloggi svo ekki bara næst í næsta mánuði þegar ég er komin heim frá DK!!

Þangað til næst...

-Ragna Guðmundsdóttir 

Afmæli!!!

10. september 2007 klukkan 20:50

Ætli maður bloggi ekki aðeins um hvað??

Er veik, með hita og krónískann höfuðverk.. Ekki svo rosa gott...

Rosa lítið að frétta af mér.. Byrjuð í "Nýju" vinnuni, það er að segja búin að færa mig yfir í matvöruna og er yfir heilli deild. Ekki gera grín en það er mjólkurtorgið...

Betri laun, er það ekki fyrir öllu Glottandi

Á afmæli eftir nákvæmlega 10 daga, og eftir 11 daga ætlum við Herdís og Jana að skella okkur í sumarbústað og hafa það kósý, drekka, éta og rúlla okkur svo yfir í heitapottinn... NICE!!

Svo er ég víst að fara Út í Nóvember.. Gleymi því alltaf, svo langt síðan við pöntuðum farið,
Ég , Mamma, Pabbi , Agnes, Ingunn, Nonni, Hildur , Stulli og Kolbrún Edda ætlum að skella okkur til kóngsins köben 15 nóv á Jólahlaðborð , skilst mér,

Ætli það sé nokkuð fleira.. Ég og Herdís fengum þá snilldar hugmynd á laugardaginn og skelltum okkur upp á skaga, hittum þar Jönu, Petru og Díönu og rúntuðum þar til við vorum hættar að sjá útum rifurnar á augunum vegna þreytu...
Mjög gaman að hitta Jönu loksins... Gerist allt of sjaldan

En jæja.. Ætli maður fari ekki að rölta bara inní ból..
Munið eftir afmælinu mínu þarna Bless Bless!!

http://www.myspace.com/raagna

Raggi Bjarna/Bubbi/Papar

08. júlí 2007 klukkan 21:50

Já Komiði sæl og blessuð eins og vinur minn hann Jón Ársæll á það til að segja!

Eins og ég sagði í síðasta bloggi ætlaði ég mér kanski ekki að hætta alveg og skjóta kanski inn fáeinum orðum annaðslagið í sumar..

Dagurinn í dag er búinn að einkennast af leti og meiri leti, svengd og jú leti!

Í gærkvöldi um kl 10 skunduðum við , Gaui og Herdís upp á Skaga á svokallaða Írska daga, og sé ég ekki eftir því..

Á leiðinni var stúturinn á Hvítvínsflöskunni tekinn í bakaríið og opnaður bjór og byrjað að djamma!
þegar við komum hittum við Jönu ást. Sjæs hvað var gaman að sjá hana loksins.. Við gerðumst boðflennur í einhveru afmælispartýi (man ekki einu sinni hver átti afmæli) og fórum síðan á ball.. Þar sem að ég er bara smákrakki og á ekki að komast inná böll varð ég mjööög heppin því að það rölti maður upp að okkur Herdísi og spurði hvort okkur vantaði miða..

og þar sem að ég var með lausann pening þá gat ég keypt miðann af honum! thank god, því annars hefði ég kanski ekki komist inn...

En Inn var farið , byrjað á því að pissa.. ekki í fyrsta skipti og ekki í það síðasta!

Fengum okkur eina feita "jónu" og fórum svo og hlustuðum á Ragga Bjarna,

ég er náttúrulega alltaf sú eina sem hef gaman af svona gömlum og íslenskum þannig að ég dansaði bara við sjálfa mig / eða kanski bara bjórinn...

Svo á eftir Ragga kom Bubbi , og vitiði ég verð nú að segja að ég varð fyrir dulitlum vonbrigðum með hann Nafna minn hann Bubba... (nafna?) en já hann tók bara Róleg lög og e-a ekki gaman að dansa við það

Á eftir bubba kom uppáhalds uppáhaldið mitt.. Þeir í PÖPUNUM eða Matti og Pétur Jesú og e-a.. Dúndurfréttir eða veit ekki hvað þeir heita..:/ Shit þá var sko dansað af sér rassgatið og meira en það!

Héldum svo bara útaf ballinu, hitti þá Olgu og Ernu , Agnesi frá Reyðarfirði, Togga sprett! Nei reyndar ekki .. þetta gerði ég bara fyrir hana Heiðrúnu!

Jú vitiði ég hitti Rauðhærðasta mann íslands og það er víst bróðir Elíasar!! óhh jáhh...

Heyriði þegar við vorum að rölta frá ballinu og að bílnum sá ég þennan myndarlega kassa, opnaði hann stakk aðskotahlut undir kjólinn hjá mér og hljóp út í bíl... Aðskotahlutur=Björgunarvesti! haha.. þetta er Gestabókin mín í herberginu krakkar mínir þannig að ef þið viljið fá að kvitta þá verðiði að kíkka í heimsókn!!


En Vóhh sagði ég ekki fáeinum orðum..
jújú þau urðu aðeins fleiri!
Minni á mæspeisið : http://www.myspace.com/raagna

Verið sæl, ekkert væl og tæl!!

Komið að leiðarlokum!!

27. maí 2007 klukkan 12:20





Jæja góðir hálsar!
Nú hef ég ákveðið að taka mér smá pásu frá ritningargreinum
á þessari síðu!!

Ætla að vera í fríi frá bloggheiminum allavega í sumar, kanski hendir maður inn fáeinum orðum maður veit aldrei..

Jæja, ég er farin að lifa lífinu...

Verið Hress, Ekkert stress og Bless!!



-Ragna Guðmundsdóttir

Hvað á ég að gera?

21. maí 2007 klukkan 17:54
Langar að læra e-a en veit ekki hvað..
Langar að fara út en enginn vill koma með..
Langar að flytja austur en ekki má ég það..
Langar að læra förðun en það er soldið dýrt..

Guð veit ekki hvað ég á að gera.. það er einhvernveginn allt á móti mér þessa dagana..
Þoli ekki vinnuna (ekki að það sé e-a nýtt)
Þoli ekki vinnufélagana specially eina stelpu sem er að gera mig gráhærða og kallar mig ógeð!!
Hrmpf..


Jæja.. Fór nú samt í sumarbústað um helgina með :
Herdísi,Fibba,Söndru,Sindra, Andra og leiðinlega vinnufélaganum..!!

ég fékk að fljóta með Herdísi og Fibba uppeftir og þegar við komum þangað þá grilluðum við Sandra,Sindri, Fibbi og Herdís en hin voru ekki komin..
Byrjuðum svo að drekka og ætluðum aldeilis að skella okkur á trampolínið sem var þarna.. En nei.. haldiði að það hafi ekki verið búið að taka loftið úr helvítinu..
þannig að við skelltum okkur aðeins í leiktækin sem voru þarna og strákarnir fóru í Hafnarbolta!

Fórum svo heim og í Buzz og Guitar Hero..
Svo fórum við Herdís að lúlla í þeirra bóli en Fibbi hélt áfram í Guitar Hero og drapst svo í stofunni þannig að við fengum rúmið útaf fyrir okkur..

Daginn eftir vöknuðum við fengum okkur að borða og svo fóru strákarnir + Líney til Borgarnesar til þess að horfa á leikinn þannig að við Sandra og Herdís þrifum bara allt og höfðum kósý.. Þau komu svo heim um 6 leytið að mig minnir og þá fórum við að grilla, drukkum meira og höfðum gaman, svo fóru allir í pottinn í fötunum.. Rosa Rosa gaman..!!

Svo á laugardagskveldinu var svolítið Drama en við ræðum það ekkert frekar, Endaði bara þannig að ég,Sandra og Herdís sváfum saman í hjónarúminu og vöknuðum á undan öllum pökkuðum niður og fórum...

stoppuðum á Borgarnesi og tókum bensín og fengum okkur að borða og bíllinn ætlaði bara ekki í gang, eftir að við vorum búnar að reyna að starta bílnum í hálftíma gáfumst við upp og létum einn mann sem var að vinna þarna hjálpa okkur og honum tókst að starta bílnum á korteri!!

Já þetta var nú bara ágætis ferð þrátt fyrir allt..!!



myndir frá ferðinni eru að finna á nýju myndasíðunni minni
www.picasaweb.google.com/ragnalindg

Úr á lífið!

09. maí 2007 klukkan 10:54

Hér sit ég með Skyr.is drykkjarjógúrt með bláberjabragði!
það er Í miklu uppáhaldi þessa dagana hjá mér!

Fer í vinnu á eftir kl 12 og eftir þann vinnudag er ég sko komin í LANGT langþráð helgarfrí!!!!

Svo kemur Heiðrún mín á morgun...Brosandi

Það verður sko brallað mikið, farið í búðir, haldið Júrupartý og Dottið í það...

Ohh I can't wait...

Heyriði.. Haldiði að mín sé ekki bara byrjuð að læra á bíl.. Jújú mikið rétt...
Haldið ykkur bara heima næstu 5 mánuði...Ullandi

Gengur bara rosa vel samt.. Búin með 3 ökutíma og svonna...
En jæja.. Ætli maður verði nú ekki að lýta sæmilega út svona síðasta daginn fyrir helgi...
Verð þá að fixa það...Glottandi

Enda þetta svo á mjög svo viðeigandi lagi sem er einnig í uppáhaldi hjá mér þessa daga!!

Vikan er liðin, og nú loks fæ ég frí
Frá Morgni til kvölds hef ég sagt góðan dag
Við gráhærða menn, pirrað fólk út í bæ
Læst bakvið steypu og gler 

Það er föstudagskvöld
Fer í bað fæ mér glas
Panta svo bíl niðr’í bæ

42d663a7.gif


-Ragna Guðmundsdóttir!

Kominn tími á nýtt blók..

29. apríl 2007 klukkan 20:05

Hef því miður ekki haft tíma til þess að blogga, er búin að vera að vinna síðustu 10 daga frá 12-20.. en núna sem betur fer var helgarfrí, en svo að vinna alla næstuviku frá 12-20 og næstu helgi líka...
Maður græðir víst á þessu...

Verð að vinna alla daga þangað til 10. maí. þá kemur Heiðrún mín elskan til mín og ætlar að vera framm á sunnudaginn 13. maí.. hlakkar ýkta mikið til..
Ætlum að versla og versla, og detta feitast í það á laugardeginum yfir júruvisíon..

Talandi um Heiðrúnu, hún var svo yndisleg að gera þennan sumarlega banner fyrir mig.. Takk elskan:**

Fór í bæinn með múttu í dag og fékk þar eitt stykki jakka og eitt stykki kjól... Elskana...:**

Ætlaði nú bara að láta vita að ég sé á lífi , ætla nú að fara að draga Herdísi mína með mér út..
Smell ya later..






                      


-Ragna Guðmundsdóttir



 

Prófíll

  • Nafn: Ragna Guðmundsdóttir
  • Staður: Reykjavík, Vopnafjörður
  • Hjúskaparstaða: Lafandi Lausu..:D